Jamm og jæja...
Þá er helgin liðin hjá og vikan tekur við með sínum vanagangi...
Þetta var þrususkemmtilegt partý. Maður kvöldsins var án efa Gísli húsvörður sem hefur þann mann að geyma að vera diskótekari um helgar og er hann hvorki meira né minna en með diskótekið Dúndur. jess. Þetta var svaðalegur stemmari þarna, allir að dansa og í skemmtilegm gír.
Þessi hópur var að hittast í fyrsta sinn með mökum í þessu partíi og við smullum öll bara saman, sumir þó meira en aðrir heheh djók,
En þetta var flott.
Sú sem átti kvöldið einnig og mun ég krýna hana diskódrottningu kvöldsins það er hún Guðrún, hún var sko í gallanum, alveg svaðalegur glans samfestingur með belti í miðjunni og skær grænar pallíettugrifflur, ekkert smá flott.. Til hamingju Guðrún,, slóst mér alveg út.. hehe
Við fórum svo nokkur niður á Óliver eftir partíið og dönsuðum þar áfram. Það vildi svo skemmtilega til að ég hitti æskuvini mína úr eyjum sem ég hef ekki hitt sko í rúmlega 13 ár,, vá. hehe ekkert smá margt breytt hjá okkur síðan þá,, hmmm vá, erum annaðhvort gift eða fráskilin, eigum orðið börn og buru. Bara gaman að rifja upp gamla tíð..
Svo bara secritaði ég til mín sófasett í gær heheh. Við hjónin erum búin að vera að stúdera secret.. Nenni ekki að útskýra það,, en þeir sem vita eitthvað um þetta ,,, þá sko lokaði ég augunum í gær og sá bara fyrir mér sófasett hérna upp hjá mér, svo fór ég á kassi.is og fann þar þetta flotta nýlega sófasett sem ég fékk á 35 þúsund kellll. Það er bara æði hérna og svo fór ég í bankann og tók út 100 milljónir hehhehhehehhe right.
Er þaggi eða eigum við að ræða það ekkvað, nei hélt ekki sko.
Jæja verða að fara að ganga frá einu herberginu hérna uppi allt að fyllast af gestum hjá mér næstu helgi. eins gott að hafa þetta fínt.... 
Liebe ist....
... sie mit Rosen und Küssen zu überhäufen. . Ekki spurning.
Jæja verið hress, og massiði svo Næturvaktar snilldina.
Já fínt já sæll Kveðja Marý.